Spurt & svarað
Gott að vita áður en við byrjum
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um þjónustuna, undirbúninginn og hvað gerist þegar þú bókar.
Hvað gerist eftir að ég sendi bókunarbeiðni?
Við förum yfir upplýsingarnar og myndirnar, ef þær fylgja, og höfum samband. Síðan finnum við tíma fyrir úttekt þar sem við skoðum rýmið, þarfir heimilisins og umfang verkefnisins. Verð og tímasetning eru staðfest áður en vinna hefst.
Þarf ég að vera heima á meðan?
Nei. Við hittumst fyrst, förum yfir þarfirnar og tökum þær ákvarðanir sem þarf. Á umsömdum vinnudegi getur þú farið í vinnuna, bústaðinn eða frí og við sjáum um restina. Þegar verkefninu er lokið förum við yfir niðurstöðuna með þér.
Þarf ég að taka til áður en ég sendi myndir eða við hittumst?
Nei, alls ekki. Það hjálpar okkur að sjá rýmið eins og það er venjulega notað. Myndir af rýminu gefa góða fyrstu sýn og fyrir eldhús má gjarnan senda myndir innan úr skápum og skúffum.
Þarf ég að kaupa nýjar hirslur?
Ekki endilega. Við nýtum það sem er til þegar það virkar. Ef aðrar hirslur myndu gera kerfið einfaldara eða nýta plássið betur leggjum við fram tillögur og ákveðum með þér hvað hentar áður en eitthvað er keypt.
Hvað gerist ef hlutir úr öðrum rýmum koma í ljós?
Við söfnum þeim saman í kassa og færum þá í viðeigandi rými. Við göngum ekki frá þeim þar nema það rými sé einnig hluti af samningnum.
Er einhverju hent án míns samþykkis?
Nei. Við förum yfir fyrirfram hvernig ákvarðanir um förgun eða gjafir verða teknar. Ekkert sem þarf þitt mat fer án samþykkis.
Er þrif innifalið?
Þjónustan er skipulagsþjónusta en ekki almenn þrifaþjónusta. Við þurrkum af hillum, skúffum og vinnuflötum eftir þörfum þegar rýmið er tekið í gegn. Þvottur og almenn heimilisþrif eru ekki innifalin.
Hvers konar rými tekur Skipulagið að sér?
Við vinnum í venjulegum íbúðarrýmum. Við tökum ekki að okkur mjög óhreint eða óheilnæmt húsnæði, ófrágengna kjallara, raka geymslu eða sambærileg rými þar sem aðstæður geta haft áhrif á heilsu og öryggi.
Hversu langan tíma tekur eitt rými?
Það fer eftir stærð og umfangi. Minni, afmörkuð rými taka oft allt að fjórar klukkustundir. Eldhús og barnaherbergi eru metin sem um 6, 9 eða 12 klukkustunda verkefni. Stærri verkefnum er skipt í raunhæfa áfanga.
Get ég bókað eingöngu ráðgjöf?
Já. Ráðgjöf hentar þegar þú vilt fá faglegt mat, skýra stefnu og framkvæmanleg næstu skref en vinna sjálf áfram.
Hver er munurinn á ráðgjöf og ráðgjöf með fjarþjálfun?
Í báðum leiðum hittumst við og þú færð sérsniðnar skriflegar leiðbeiningar. Í fyrri leiðinni vinnur þú sjálf áfram. Með fjarþjálfun hittumst við síðan í þremur stuttum fjartímum á fjórum vikum, hjálpum þér að leysa það sem tefur þig og ákveðum næsta skref saman. Sjá ráðgjafarleiðir.
Er bókunarbeiðni bindandi?
Nei. Þegar þú sendir bókunarbeiðni höfum við samband og förum yfir umfang, verð og tíma. Bókun verður staðfest þegar við höfum náð samkomulagi um þessa þætti.
Hvað ef ég vil ekki senda myndir af heimilinu?
Það er í lagi. Myndir hjálpa við fyrsta mat á verkefninu en eru valfrjálsar. Við getum skoðað rýmið saman þegar við hittumst. Lestu hvernig við förum með upplýsingarnar þínar.
Hvernig sæki ég og prenta tiltektarspjöldin?
Á síðu tiltektarspjaldanna getur þú fyrst valið „Skoða“ til að sjá allt spjaldið, síðan „Sækja“ til að vista það. Spjöldin eru PDF í A5-stærð og má prenta til persónulegra nota.
Hvar sé ég verð og skilmála?
Á verðskránni sérðu verð fyrir algeng rými og helstu fyrirvara. Umfang og endanlegt verð eru alltaf staðfest áður en vinna hefst. Nánari upplýsingar eru í skilmálum þjónustunnar.
