Um Skipulagið

Ég heiti Silja

Ég er konan á bak við Skipulagið.

Áhugi minn á skipulagi hefur fylgt mér lengi. Ég hef alltaf haft gaman af því að finna einfaldari leiðir til að láta heimilið virka betur, finna hlutunum rökréttan stað, nýta rýmið vel og búa til lausnir sem auðvelt er að halda við í daglegu lífi.

Ég bý sjálf á stóru og lifandi heimili með manninum mínum, fjórum börnum og hundi og öllu því sem fylgir fjölskyldulífi, heimili og garði. Börnin eru nú orðin unglingar og í gegnum árin hef ég þurft að breyta skipulaginu aftur og aftur eftir því sem lífið okkar hefur breyst. Það sem virkaði með ungabörnin þurfti að breytast þegar þau urðu leikskólabörn, svo skólabörn og nú unglingar og framhaldsskólanemar.

Og þannig mun það halda áfram. Einhvern tímann flytja þau að heiman, kannski koma makar inn í fjölskylduna og síðar meir barnabörn. Þá breytast heimilið og þarfirnar enn á ný.

Kerfið á að aðlagast lífinu, ekki lífið kerfinu.

Í gegnum tíðina hef ég skipulagt mín eigin heimili, hjálpað öðrum með sín og áður haldið úti Snapchat-aðganginum „Skipulagið“, þar sem ég sýndi frá skipulagi og lausnum sem ég notaði sjálf. Það var þó ekki fyrr en ég fór að skoða þetta allt betur sem ég áttaði mig á því að ég hafði í raun þróað ákveðna aðferð við að skipuleggja, án þess að hugsa sérstaklega um hana sem kerfi.

Faglegi bakgrunnurinn minn hefur líklega haft meiri áhrif á þetta en ég gerði mér grein fyrir. Ég er viðskiptafræðingur og hef í yfir 15 ár unnið við verkefnastjórnun, ferlagreiningu og þróun lausna. Ég er vön að skoða hvernig hlutir virka, finna hvar flækjurnar liggja og leita leiða til að gera þá einfaldari.

Það er í raun nákvæmlega það sem ég geri í Skipulaginu, bara inni á heimilinu.

Eftir mörg ár í fyrirtækjaumhverfi fór ég að hugsa meira um hvaða áhrif ég vildi hafa með vinnunni minni. Verkefni klárast, áherslur breytast og ný taka við. Mig langar að nota reynsluna mína þar sem ég get séð áhrifin ná beint inn í daglegt líf fólks og það sem skiptir það raunverulega máli.

Þegar einhver segir mér að breytingarnar sem við gerðum hafi orðið til þess að daglegt líf á heimilinu gangi betur, þá veit ég af hverju ég er að þessu. Stundum þarf ekki nema nokkrar litlar breytingar til að létta á daglegu álagi, einfalda morgnana eða gera heimilið að betri stað til að vera á.

Þetta eru kannski litlar breytingar á heimilinu, en þær geta haft stór áhrif á lífið sem fer fram þar.

Ég vil að fleiri búi á heimilum sem virka fyrir fólkið sem býr þar, þar sem auðveldara er að finna hlutina, ganga frá þeim og halda utan um daglegt líf.

Það er það sem ég vil hjálpa þér að skapa.

Silja Valdemarsdóttir
Skipulagsráðgjafi

Silja í hlýlegu og skipulögðu eldhúsi